8 ágúst, 2010 New Suðurlandsferðin hafin
Farandsýning Tilraunalandsins er nú um borð í Herjólfi, á leið til Vestmannaeyja. Í gær tók Tilraunalandið þátt í hátíðinni Sumar á Selfossi. Það ringdi töluvert, en það gerði tjöldin sem eru hluti af sýningunni bara þeim mun vinsælli. Þá bjuggu starfsmennirnir líka til nýja “tilraun” á staðnum, sem snerist um það að sjá hversu lengi Vatnshöggið væri að fyllast með regnvatni. Það tók 36 mínútur (reyndar með hjálp frá nokkrum smærri fötum).
Nú taka við tveir dagar í Vestmannaeyjum, og síðan áfram eftir suðurströndinni.
- Skrá ummæli
- Posted under Uncategorized
20 júlí, 2010 Sól og sumar á Norðurlandi!
Norðurlandið hefur tekið á móti Tilraunalandinu með sól og blíðu undanfarna daga. Um helgina var sýningin á Húnavöku á Blönduósi og síðan á Sauðárkróki en þessa dagana tekur Tilraunalandið þátt í Mærudögum/Sænskum dögum á Húsavík.
Það er rétt að benda á smá breytingu í dagskránni, en ákveðið hefur verið að Tilraunalandið verði á Akureyri viku seinna en upprunalega hafði verið áætlað. Sýningin verður þar 27. ágúst til 1. september, en þaðan verður síðan haldið á Ljósanótt í Reykjanesbæ. Annars eru nýjir áfangastaðir að detta inn þessa dagana, svo fylgist vel með hér til hægri!
- Skrá ummæli
- Posted under Uncategorized
8 júlí, 2010 Myndir af Farandsýningu Tilraunalandsins
Tilraunalandið nýtir sér að sjálfsögðu tæknina og er komið með síðu á ljósmyndavefnum Flickr. Myndirnar má finna með því að fara á þessa vefslóð: http://www.flickr.com/photos/51690199@N07/, en þær nýjustu birtast einnig hér hægra megin á Bloggsíðunni.
- Skrá ummæli
- Posted under Uncategorized
8 júlí, 2010 Tilraunalandið á öldum Breiðafjarðarins
Þegar þessi orð eru skrifuð hefur Tilraunalandið komið sér fyrir í Breiðafjarðaferjunni Baldri. Aðrir farþegar fá þó ekki að njóta sýningarinnar enda hún geymd fyrir neðan dekk. Ástæðan er náttúrulega sú að eftir frábæra daga á Snæfellsnesi er komið að Vestfjörðunum að njóta Tilraunalandsins, en þar eru áfangastaðirnir tveir í þessari lotu. Á morgun verður sýningin á Patreksfirði og á laugardaginn tekur Tilraunalandið þátt í Sæluhelgi á Suðureyri.
Rétt er að taka fram að upprunalega átti sýningin að vera á Sjúkrahústúninu á Ísafirði, en í sameiningu með Ísafjarðarbæ var tekin ákvörðun um að færa hana og hafa Tilraunalandið þannig með í hátíð sveitarfélagsins.
- Skrá ummæli
- Posted under Uncategorized
7 júlí, 2010 Tilraunalandið gefst ekki upp þó á móti blási (bókstaflega): Stykkishólmur og Grundarfjörður
Nú er Farandsýning Tilraunalandsins á Snæfellsnesi. Í gær var sýningin sett upp í hjá Grunnskólanum í Stykkishólmi gestum og gangandi til ánægju og yndisauka. Tilraunalandið ferðast um í tveimur vögnum, sem eru dregnir af tveimur bílum. Á Stykkishólmi var annar bíllinn færður burt af sýningarsvæðinu og eitthvað ruglaði það unga mær sem velti því mikið fyrir sér hvernig einn bíll gæti dregið vagnana tvo. Þar sem þeirri tilraun hefur ekki verið bætt við Tilraunalandið verður fólk að láta sér nægja Skjaldbökubílana, sem raunar önnuðu varla eftirspurn í Stykkishólmi.
Í gærkvöldi var síðan keyrt til Grundarfjarðar þar sem Tilraunalandið hefur verið með sýningu í dag. Í morgun stefndi í vanda, þar sem veðurguðurnir ákváðu að skella á roki. En Tilraunalandið dó ekki ráðalaust og fékk inni í íþróttahúsi bæjarins þar sem hefur verið mikið líf og fjör í allan dag. Meðal annars var Vindbyssan dregin fram og slökkt á kertum, í tilefni þess að sýningin var innandyra. Nú er ferðinni heitið yfir Breiðafjörðinn upp á Patreksfjörð og síðan Sæluhelgi á Suðureyri.
- Skrá ummæli
- Posted under Uncategorized
5 júlí, 2010 Förinni haldið áfram: Írskir dagar á Akranesi og Búðardalur
Farandsýning Tilraunalandsins rann í gærkvöld í hlaðið í Búðardal þar sem sýningin opnar á hádegi í dag. Um helgina tók Tilraunalandið þátt í Írskum dögum á Akranesi og vakti þar mikla lukku. Það var stöðugur straumur gesta og ungir jafnt sem aldnir skemmtu sér konunglega við að prófa Gyrohjólið, brjóta heilann um Risaskilnaðinn eða sulla aðeins í Vatnshögginu. Margir gestanna komu tvo daga í röð, mættu seinni daginn til þess að skoða það sem þeir komust ekki yfir fyrri daginn eða til að leysa ráðgátur sem þeir höfðu brotið heilann um yfir nóttina.
Eins og fyrr segir er næst á dagskrá að leyfa íbúum Búðardals að kynnast Tilraunalandinu og þaðan er förinni heitið á Snæfellsnesið áður en Vestfirðirnir verða sóttir heim. Hægt er að fylgjast með dagskránni hér til hægri á síðunni. Þar er einnig tengill á Flickr-síðu Tilraunalandsins þar sem myndir af flakkinu er að finna.
- Skrá ummæli
- Posted under Uncategorized




