Skip to content

Tilraunalandið

Vísindin lifna við

Tilraunalandið leggur í’ann
Norræna húsið og Háskóli Íslands verða á ferð og flugi um allt land í sumar með farandsýningu Tilraunalandsins.  Í Tilraunalandinu kynnast börn og ungmenni undraheimum vísindanna í gegnum leik og skemmtun.
Nú komið að því að kynna Tilraunalandið víða um landið og er Landsvirkjun aðalstyrktaraðili ferðarinnar.  Það er ekki ofsögum sagt að nánast öll börn á höfuðborgarsvæðinu þekki Tilraunaland Norræna hússins og Háskóla Íslands. Sýningin hefur slegið í gegn og mörg þúsund manns hafa gert sér ferð niður í Vatnsmýrina.

Tilraunalandið hefur gefist mjög vel í Vatnsmýri og verið mikið sótt af hópum úr grunnskólum, leikskólum og leikjanámskeiðum, sem og fjölskyldufólki,“ segir Þuríður Helga Kristjándóttir, verkefnastjóri Tilraunalandsins.  „Af þeim sökum hefur verið ákveðið að gefa fleirum færi á að kynnast vísindunum á þennan lifandi og skemmtilega hátt með því að taka sýninguna á ferð um landið í sumar.

Tveir vagnar fullir af fjörugum tilraunum Tilraunalandsins munu  skrölta um ögrum skorið landið og heimsækja hvern bæinn á fætur öðrum. Hægt verður að fylgjast með ferðum þeirra á sérstakri bloggsíðu, www.tilraunalandid.wordpress.com , og einnig verður hægt að skoða dagskrána á síðu Norræna hússins, www.norrraenahusid.is . Vagnarnir eiga ekki að fara framhjá neinum þar sem þeir eru fagurlega merktir Tilraunalandinu og í björtum litum.

Undanfarna daga hefur farandsýningin verið á flakki um höfuðborgarsvæðið og í Hveragerði, þar sem henni hefur verið einstaklega vel tekið.

Enn eru áfangastaðir að bætast við, en meðal annars má benda á að Tilraunalandið verður á Írskum dögum á Akranesi 3.-4. júlí og Sænskum dögum á Húsavík 20.-21. júlí. Þá verður sýningin á Akureyri vikuna 21. til 27. ágúst.

Fyrir frekari upplýsingar eða bókanir má hafa samband við verkefnisstjóra farandssýningar Tilraunalandsins:

Sölvi Karlsson, s. 865 0257, solvi.karlsson@gmail.com
Stefán Dal, s. 6968457, stefandal@simnet.is

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.