7 júlí, 2010 Tilraunalandið gefst ekki upp þó á móti blási (bókstaflega): Stykkishólmur og Grundarfjörður
Nú er Farandsýning Tilraunalandsins á Snæfellsnesi. Í gær var sýningin sett upp í hjá Grunnskólanum í Stykkishólmi gestum og gangandi til ánægju og yndisauka. Tilraunalandið ferðast um í tveimur vögnum, sem eru dregnir af tveimur bílum. Á Stykkishólmi var annar bíllinn færður burt af sýningarsvæðinu og eitthvað ruglaði það unga mær sem velti því mikið fyrir sér hvernig einn bíll gæti dregið vagnana tvo. Þar sem þeirri tilraun hefur ekki verið bætt við Tilraunalandið verður fólk að láta sér nægja Skjaldbökubílana, sem raunar önnuðu varla eftirspurn í Stykkishólmi.
Í gærkvöldi var síðan keyrt til Grundarfjarðar þar sem Tilraunalandið hefur verið með sýningu í dag. Í morgun stefndi í vanda, þar sem veðurguðurnir ákváðu að skella á roki. En Tilraunalandið dó ekki ráðalaust og fékk inni í íþróttahúsi bæjarins þar sem hefur verið mikið líf og fjör í allan dag. Meðal annars var Vindbyssan dregin fram og slökkt á kertum, í tilefni þess að sýningin var innandyra. Nú er ferðinni heitið yfir Breiðafjörðinn upp á Patreksfjörð og síðan Sæluhelgi á Suðureyri.
- Skrá ummæli
- Posted under Uncategorized