Skip to content

Tilraunalandið

Vísindin lifna við

Í Tilraunalandinu eru allir jafnvígir, það þarf ekki að “kunna” neitt sérstakt til að taka þátt en gott að hafa fróðleiksþorstann, hugrekkið og ímyndunaraflið með í farteskinu.

Upplifun og uppgötvun
Markmið sýningarinnar er að kynna og kanna undraheima vísindanna, veita innblástur og vekja upp forvitni um tilraunir, tæki og lögmál náttúrunnar.

Tilraunalandið er að miklu leyti grundvallað á hugmyndafræði og tækjum Tom Tits Experiment í Svíþjóð en jafnframt leggur Tilraunasmiðja Háskóla Íslands til tæki, tilraunir og faglega leiðsögn.

Tilraunalandið stækkar með hækkandi sól

Á lóð Norræna hússins er nú að rísa skáli sem mun hýsa Tilraunalandið frá og með 15.maí. Við skálann munu einnig vera kúnstugar kerrur uppfullar af skemmtilegum tilraunum sem hægt er að framkvæma undir berum himni. Vatnatilraunir Tilraunalandsins sem fyrst um sinn verða í gróðurhúsi Norræna hússins munu flytjast á sama svæði en verða staðsettar við 6 metra háan sandkassa sem Stavanger í Noregi hefur fært Norræna húsinu að gjöf.

Börnin eru fjöregg framtíðar

Barnamenning verður í forgrunni í Norræna húsinu og Reykjavíkurborgar á þessu ári og er Tilraunalandið hluti af dagskránni; Fjöregg: barnamenningarhátíð Norræna hússins 2010. Bæklingur Fjöregg : fjoregg_baeklingur_vefur

Háskóli Íslands hefur um árabil lagt áherslu á að miðla vísindum til ungra Íslendinga, svo sem með Háskóla unga fólksins og Vísindavef HÍ. Tilraunalandið er liður í samstarfi HÍ og Norræna hússins sem stefnt er á að auka enn frekar á næsta ári, á aldarafmæli Háskóla Íslands.

Ókeypis og öllum opið
Enginn aðgangseyrir er á sýninguna, allir eru velkomnir en þurfa þó að skrá sig á www.norraenahusid.is til þess að fá greiðan aðgang að tilraununum. Opnað verður fyrir skráningu eftir helgi.

Helstu kennslufræðileg markmið Tilraunalandsins:

* Nemendur vinna á gagnvirkan hátt sem byggja á vísindalegum aðferðum, þ. e. þau rannsaka og skoða.

* Tilraunirnar, tækin og umhverfið eru hvetjandi og örvandi.
* Nemendur fá nýja innsýn inn í náttúruvísindi og tækni.

Fræðin úr bókunum lifna við!

Hægt er að bóka tíma í tilraunalandið í síma Norræna hússins 5517030 og á netfangið nh@nordice.is

Bókunum þurfa að fylgja fjöldi gesta, símanúmer,netfang og æskilegur komutími. Gestir fá staðfestingu senda í tölvupósti á að bókunin hafi heppnast.

Hér er skemmtilegur hlekkur á tilraunir sem hægt er að gera heima: http://www.tomtit.se/Hem-1/Vara-experiment2/Experimentera-hemma/

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.